Tuesday, October 28, 2008

Neitum að borga um mánaðarmótin

90% þjóðarinnar treystir ekki Seðlabankastjóranum.

Eðlilegt er að fylgja því eftir með því að neita að borga af lánum um mánaðarmótin.

Vill nokkur sjá á eftir peningum í hendur á manni sem hann treystir ekki?
Mundir þú lána óreiðumanni pening?

Ef þessi 90% sem ekki treysta Davíð neita að borga af lánunum sínum geta stjórnvöld ekkert gert.
Þau verða að hlusta á fólk.

Land sem býr við 18% vexti er hvort sem er óbyggilegt, þannig að um neyðarrétt er að ræða.
Fólk er í nauðvörn, og hefur rétt á að hafna stjórnvöldum sem vinna að eyðileggingu landsins.

2 comments:

Anonymous said...

frábært að sleppa því að borga og fá 30% dráttavexti ofan á skuldirnar !!!!!!!!!!!!!!

Anonymous said...

Þetta er of stuttur fyrirvari þegar flestir eru með sjálfvirkar skuldfærslur eða greiðsluþjónustu.
Fólk þarf að bjarga laununum sínum með því að stofna nýjan reikning (mæli með: án yfirdráttarheimildar)
eða sparisjóðsbók, láta launagreiðanda vita af breytingunni.
Bankinn má ekki fara inn á þennan reikning ef þú gefur ekki leyfi til þess.

En gott framtak.

http://okurvextir.blogspot.com